⚽ Ertu að hugsa um að mæta í fyrsta skipti?

Það er alveg eðlilegt að vera óviss eða vita ekki alveg við hverju má búast. Við tökum alltaf vel á móti nýju fólki.

Þú þarft enga reynslu af fótbolta, þarft ekki að vera í góðu formi og þarft ekki að skrá þig fyrirfram.

💚 Hvað má ég búast við?

Hvernig æfingin fer fram fer eftir deginum og því hversu margir mæta. Stundum byrjum við á léttri upphitun, stundum spilum við göngufótbolta og stundum förum við beint í spil.

Það er engin pressa og enginn þarf að vera bestur. Á æfingunum eru allir jafnir og markmiðið er hreyfing, félagsskapur og betri líðan.

💬 Viltu spyrja eitthvað áður en þú mætir?

Bergþór svarar alltaf. Ekki hika við að senda línu eða hringja, hvort sem þú ert að spyrja um æfingatíma, staðsetningu eða bara vilt vita meira um félagið áður en þú mætir í fyrsta skipti.

📧 Netfang: fotbolti.saeko@gmail.com

📞 Sími: 766 0940 (Bergþór)