Síðan 2011 · opið öllum
Þar sem geðheilsa, hreyfing og gleði fara saman. Við nýtum kraft fótboltans til að efla andlega og líkamlega heilsu og draga úr fordómum.
Fjórar æfingar í viku, allar inni. Þú þarft ekki að skrá þig, mættu bara og prófaðu.
Við erum með æfingahóp á Facebook.
Æfingahópur á FacebookÞað er alveg eðlilegt að vera óviss. Þú þarft enga reynslu af fótbolta og þarft ekki að vera í góðu formi.
Mánudagar og föstudagar eru rólegastir og þá mætir Bergþór líka. Sunnudagar eru fjölmennastir.
Þú þarft ekki að skrá þig og það kostar ekkert að prófa. Við tökum vel á móti þér frá fyrstu mínútu.
Stundum byrjum við á göngufótbolta þar sem hlaup eru bönnuð. Þú stjórnar álaginu og mátt stíga af velli hvenær sem er.
Fótboltinn hefur fært okkur á mót víða um Evrópu. Sjá allar ferðir
Bad Tölz, júní 2026
FC Sækó lék til úrslita í fyrsta sinn í sögu félagsins. Fjórtán lið frá átta löndum tóku þátt og liðið kom heim með silfur eftir naumt 0-1 tap gegn heimamönnum.
Grasrótarverðlaun UEFA
Árið 2018 hlaut FC Sækó stærstu grasrótarverðlaun UEFA. Við fengum þau fyrir að nota fótbolta til að styðja fólk í bata og fyrir að allir eru jafnir á vellinum hjá okkur.
Það helsta úr starfi FC Sækó.
Titlar, greiningar og bakgrunnur verða eftir á hliðarlínunni, á vellinum erum við öll jöfn.
FC Sækó er sjálfstætt knattspyrnufélag sem leggur áherslu á svokallaðan „geðveikan fótbolta“. Við nýtum kraft fótboltans til að efla andlega og líkamlega heilsu og draga úr fordómum.
Við viljum að öllum líði vel á æfingum og að það sé gaman að mæta. Á æfingum og í leikjum eru allir jafnir, titlar og greiningar verða eftir utan vallar.
FC Sækó á Dream Euro Cup 2024 í Róm.
Árin 2021 og 2022 unnum við með KSÍ undir heitinu „Geðveikur fótbolti með FC Sækó“. Þetta var átak til að vekja athygli á því hvað fótbolti og hreyfing geta gert fyrir líðan fólks með geðraskanir.
Hlutverk KSÍ var að styðja við bakið á starfseminni og hvetja fyrirtæki og einstaklinga til að leggja málefninu lið, því margt smátt gerir eitt stórt.
Verkefnið hófst upphaflega í nóvember 2011 sem samstarfsverkefni Hlutverkaseturs, Velferðarsviðs Reykjavíkur og geðsviðs Landspítalans. Hugmyndin var frá upphafi að fólk gæti rofið einangrun og hreyft sig á eigin hraða.
Árið 2014 var knattspyrnufélagið FC Sækó svo formlega stofnað. Félagið er í dag skipað notendum geð- og velferðarkerfisins, starfsmönnum þess og öllum öðrum sem vilja sýna stuðning í verki.
Árið 2018 fékk félagið gullverðlaun UEFA fyrir grasrótarstarf og árið 2019 grasrótarverðlaun KSÍ.
Það gerist ýmislegt gott þegar maður fer út fyrir þægindarammann.
Ferðir eru stór hluti af starfi FC Sækó. Síðustu ár höfum við farið utan á hverju ári til að keppa á mótum, spila vináttuleiki og hitta lið sem vinna á sama hátt og við. Sumarið 2026 komum við heim með silfur af EASI Cup í Bad Tölz í Þýskalandi.
Fyrir marga er það stórt skref að fara út fyrir þægindarammann og ferðirnar hafa styrkt bæði sjálfstraustið og hópinn. Við stefnum á reglulegar utanlandsferðir áfram, eftir því sem aðstæður og fjárhagur leyfa. EASI Cup 2027 er í undirbúningi og okkur langar að vera með. Draumurinn er svo að halda alþjóðlegt mót hér heima.
Smelltu á hverja ferð til að sjá nánari upplýsingar og sögur.
Við tökum alltaf vel á móti nýju fólki og öll eru velkomin í hópinn.
Það er alveg eðlilegt að vera óviss eða vita ekki alveg við hverju má búast. Við viljum að öllum líði vel hjá okkur og að nýtt fólk finni strax að það er velkomið.
Þú þarft enga reynslu af fótbolta, þarft ekki að vera í góðu formi og þarft ekki að skrá þig fyrirfram. Mættu bara!
Við erum hér til að hreyfa okkur, hitta fólk og hafa gaman.
Hvernig æfingin fer fram fer eftir mætingu. Stundum byrjum við á léttri og skemmtilegri upphitun, stundum spilum við göngufótbolta þar sem hlaup eru bönnuð og stundum förum við beint í hefðbundið spil.
Allir stjórna sínu álagi sjálfir og það má hvenær sem er stíga af velli til að fá sér vatnssopa eða spjalla á hliðarlínunni.
Þú þarft ekki að vera félagsmaður til að mæta á æfingar og enginn þarf að borga til að vera með. Æfingarnar eru opnar öllum og fjárhagur á aldrei að útiloka neinn.
Þau sem vilja geta gengið í félagið, líka þau sem æfa ekki. Árgjaldið er 3.000 kr. og verður fyrst innheimt fyrir árið 2027. Félagsmenn geta mætt á aðalfund, kosið og boðið sig fram í stjórn. Hafðu samband ef þú vilt skrá þig.
Þau sem hafa tök á geta líka styrkt félagið með frjálsu framlagi. Sjá Styrktu FC Sækó
Bergþór svarar spurningum, hvort sem er í síma eða tölvupósti.
Félagið heitir FC Sækó, félagasamtök. Lögheimili þess og varnarþing er að Engjateigi 3, Reykjavík.
Tilgangur félagsins er að nota fótbolta sem vettvang til að efla andlega og líkamlega heilsu, auka virkni, rjúfa félagslega einangrun og draga úr fordómum gagnvart aðilum sem glíma við andlegar áskoranir. Félagið starfar í þágu almannaheilla og stundar ekki atvinnurekstur. Félagsmenn njóta ekki fjárhagslegs ávinnings af starfsemi þess.
Tilgangi sínum hyggst félagið ná með því að halda úti reglulegum knattspyrnuæfingum, skapa öruggan og fordómalausan vettvang fyrir félagsskap og hreyfingu, og taka þátt í mótum og ferðalögum.
Félagið er opið öllum sem vilja taka þátt í og styðja við tilgang félagsins. Öllum skal sýnd virðing og aðgát óháð getu eða bakgrunni.
Starfstímabil félagsins er almanaksárið. Á aðalfundi skal stjórn gera upp árangur liðins árs. Aðeins félagsmenn mega vera þátttakendur á aðalfundi.
Aðalfundur fer með æðsta vald í málefnum félagsins. Aðalfund skal halda ár hvert, eigi síðar en 31. maí. Til aðalfundar og annarra almennra félagsfunda skal boðað með að minnsta kosti tveggja vikna fyrirvara með sannanlegum hætti. Aðalfundur er löglegur sé rétt til hans boðað. Aðeins félagsmenn hafa atkvæðisrétt á aðalfundi. Einfaldur meirihluti mætra félagsmanna ræður úrslitum mála.
Dagskrá aðalfundar skal vera sem hér segir:
Stjórn félagsins skal skipuð 5-10 félagsmönnum, formanni og 4-9 meðstjórnendum, kjörnum á aðalfundi til tveggja ára í senn. Einnig er heimilt að kjósa allt að 3 varamenn. Stjórnin skiptir með sér verkum (varaformaður, gjaldkeri, ritari o.s.frv.) á fyrsta stjórnarfundi eftir aðalfund. Stjórn félagsins fer með málefni félagsins milli aðalfunda. Formaður boðar til funda. Firmaritun er í höndum meirihluta stjórnar.
Ákvörðun um árgjöld og/eða æfingagjöld skal tekin á aðalfundi. Ef ekki eru innheimt árgjöld er starfsemi félagsins fjármögnuð með frjálsum framlögum, styrkjum, söfnunarfé og æfingagjöldum.
Rekstrarafgangi eða hagnaði af starfsemi félagsins skal eingöngu varið í samræmi við tilgang félagsins. Félagsmenn njóta ekki fjárhagslegs ávinnings af starfsemi þess.
Ákvörðun um slit félagsins verður aðeins tekin á löglegum aðalfundi eða auka-aðalfundi. Við möguleg slit á félaginu skulu eignir þess renna til annars góðgerðarfélags eða málefnis sem samræmist tilgangi FC Sækó um bætta geðheilsu. Eignir mega aldrei renna til félagsmanna sjálfra.
Æfingarnar okkar eru opnar öllum og enginn á að þurfa að sleppa þeim vegna peninga. Við æfum fjórum sinnum í viku og leiga á æfingaaðstöðu er langstærsti kostnaðurinn okkar. Félagið er rekið í sjálfboðavinnu, svo allt sem safnast fer í starfið sjálft.
Þú getur lagt inn á reikning félagsins, hvaða upphæð sem er.
FC Sækó er á almannaheillaskrá Skattsins. Ef þú gefur samtals 10.000 kr. eða meira á árinu dregst gjöfin frá skattskyldum tekjum þínum, að hámarki 350.000 kr. á ári.
Vill fyrirtækið þitt styrkja FC Sækó eða gerast styrktaraðili? Hafðu samband og við finnum út úr því saman.
Senda póst um styrktarsamstarf